12.05.2012 21:16
Sumarhátíð 2012
Sumarhátíð
CP félagsins 2012
haldin í Reykholti í Biskupstungum fyrstu helgina 29. júní - 1. júlí.
Fjölbreytt dagskrá verður fyrir fjöldskyldurnar.
Endilega takið frá þessa helgi því að nú munum við skemmta
okkur.
Nánari dagskrár kynning mun koma fram síðar.
Upp með sumarskapið.
Þar sem kosið verður til forseta á laugardeginum viljum við
hvetja félagsmenn til að nýta sér það að hægt er að kjósa utankjörfundar.
Stjórnin.
09.05.2012 10:49
Norðurlandamót fatlaðra í boccia.
Norðurlandamót fatlaðra í boccia hefst í Laugardalshöll á föstudag og mun keppnin standa fram á sunnudag. Alls verða 79 keppendur á mótinu og þar af 22 Íslendingar. 11 keppendur koma frá Danmörku, 16 Finnar, 3 Færeyingar og 15 Norðmenn.
Dagskrá mótsins:
Föstudagur
Kl. 18:00 - 19:00 Kvöldmatur
Kl. 19:00 - 21:00 Flokkun
Kl. 19:00 - 21:00 Boltaskoðun
Kl. 20:00 - 22:00 Fararstjórafundur
Kl. 20:00 - 21:30 Æfingartími Laugardalshöll
Laugardagur
Kl. 09:45 Setning
Kl. 10:30 Keppni hefst
Kl. 12:00 - 13:50 Matur
Kl. 18:00 - 19:30 Kvöldmatur
Verðlaunafhending fer fram um leið og keppni lýkur í hverjum flokki
Sunnudagur
Kl. 09:30 Keppni hefst
Kl. 11:30 - 13:00 Matur
Kl. 16:00 Keppni lokið
23.04.2012 13:42
Ótitlað
Aðalfundur
Félags CP á Íslandi verður haldinn
Fimmtudaginn
26. apríl 2010, kl 20.
Háaleitisbraut 13, 4. hæð.
Dagskrá aðalfundar:
1.Fundur settur
2.Fundarstjóri skipaður
3.Skipaður fundarritari
4.Skýrsla stjórnar
5.Gjaldkeri kynnir reikninga félagsins
6. Ákvörðun árgjalds
7.Formannskjör
8.Stjórnarkjör
9.Kjör skoðunarmanns reikninga
10. Hver er framtíð félagsins?
11.Önnur mál
Fræðslufundur
Ebba Guðný
Guðmundsdóttir verður með fræðslu um hollt mataræði og gefur okkur að smakka
góðgæti úr sinni smiðju.
Hittumst hress og kát og
eigum saman góða kvöld stund.
10.04.2012 15:21
Málstofa um einelti.
Málstofu um einelti
12. apríl 2012 kl. 14 -16:30 í stofu H 207 í húsnæði MVS við Stakkahlíð.
Aðgangur öllum opinn og er ókeypis.
Nýlega kom út ritið Ábyrgð og aðgerðir - Niðurstöður þverfræðilegrar rannsóknar á einelti meðal barna á Íslandi á vegum Rannsóknastofnunar Ármanns Snævarr. Ritið er gefið út af forlaginu Codex. Rannsóknastofnunin ákvað að grunnskólar landsins fengju afhent eintak. Á heimasíðu ráðuneytis mennta- og menningarmála segir m.a. um útgáfuna:
"Stofnunin hafði forgöngu um þverfræðilega rannsókn á einelti meðal barna á Íslandi í samstarfi við félagsráðgjafadeild, lagadeild og menntavísindasvið Háskóla Íslands. Grunnurinn að rannsókninni voru þrjár meistararitgerðir, sem voru samþættar í lokaskýrslu. Í ritinu er fræðilegt yfirlit og greinargerð um aðferðir sem notaðar hafa verið hér á landi sem og erlendis til að vinna gegn einelti. Einnig eru teknar saman helstu niðurstöður rannsóknarinnar auk tillagna til úrbóta. Loks er í ritinu að finna útdrætti úr meistararitgerðunum þremur sem fjalla um einelti á þverfaglegum grundvelli."
Rannsóknarstofa í bernsku- og æskulýðsfræðum, BÆR og verkefnastjórnin fagnar því að athyglin beinist að einelti sem er ofbeldi sem skaðar einstaklinga til langs tíma og brýtur niður jákvæð mannleg samskipti hvar sem það á sér stað. Ofbeldi er eitt af rannsóknarsviðum meðlima í BÆR.
Dagskrá:
Fundarstjóri: Vanda Sigurgeirsdóttir lektor Tómstunda- og félagsmálafræðibraut Menntavísindasviðs HÍ
Setning: Guðrún Kristinsdóttir, stjórnarformaður BÆR
Ávarp: Ágústa H Gústafsdóttir, formaður Verkefnastjórnar um aðgerðir gegn einelti.
Erindi:
14:15 - 14:30 Daníel Reynisson, M.A. í lögfræði - Einelti frá sjónarhóli lögfræði.
14:15 - 14:30 Hjördís Árnadóttir, M.A. í félagsráðgjöf - Einelti frá sjónarhóli félagsráðgjafar.
14:45 Kaffihlé
15:05 - 15:20 Sjöfn Kristjánsdóttir, M.Ed. í uppeldis- og menntunarfræðum- Einelti frá sjónarhóli grunnskólakennarafræða.
15.20 - 15:40 Margrét Júlía Rafnsdóttir, verkefnastjóri, Barnaheill Viðbrögð við ritinu.
15:40 - 16:00 Fulltrúi kennaradeildar MVS.
16:00 - 16:30 Umræða
BÆR - Rannsóknarstofa í barna- og æskulýðsfræðum hefur frumkvæði að og sinnir rannsóknum á lífi og lífsskilyrðum barna, unglinga og ungmenna þar sem menntun og uppeldi eru séð í heildrænu samhengi einstaklings og samfélags.
Verkefnastjórn um aðgerðir gegn einelti er samstarfsverkefni Fjármála-, Mennta- og menningarmálráðuneytis og Velferðaráðuneytis um aðgerðir gegn einelti
08.04.2012 22:37
Aðalfundur
Aðalfundur Félags CP á Íslandi verður haldinn
Fimmtudaginn 26. apríl 2012, kl 20. að Háaleitisbraut
13, 4. hæð.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf og
önnur mál.
Við viljum hvetja alla þá sem hafa áhuga á að vera
í stjórn félagsins, fatlaða, foreldra og fagaðila, til að bjóða sig fram á
aðalfundinum og láta til sín taka. Þeir sem hafa áhuga og vilja vita meira um
störf og skyldur stjórnar geta haft samband við formann félagsins í síma
691- 8010.
Það er félagi sem okkar nauðsynlegt að eðlileg
nýliðun verði í stjórninni til að kraftar og hugmyndir sem flestra nýtist.
Nú er lag!!
Fræðslufundur
Eftir
aðalfundinn mun Ebba Guðný Guðmundsdóttir fræða okkur um holt
mataræði. Ebba Guðný gaf út bókina;
Hvað á
ég að gefa barninu mínu að borða?
Bókina er búið að
gefa út á ensku og þýsku.
Eins hefur hún verið
með vinsæla þætti á mbl.is
Stjórnin
hvetur alla til að taka þetta kvöld frá.
Dagskrá
kvöldsins verður auglýst síðar.
27.03.2012 06:38
Sumarbúðir
Nú eru skráningargögn fyrir Sumarbúðir ÍF komin inn á heimasíðu ÍF, www.ifsport.is
Gögnin má nálgast vinstra megin á forsíðu en þar eru heimasíða búðanna, skráningaform og upplýsingablað um búðirnar aðgengileg.
Skilafrestur skráninga rennur út þann 15. apríl næstkomandi.
22.03.2012 07:30
Ótitlað
Hvað ræður för?
Málþing um börn og ungmenni með hegðunar- og/eða geðraskanir haldið
á Hótel Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík.
Fimmtudaginn 29. mars 2012, kl. 12.30 - 16.30.
Fundarstjóri: Adolf Ingi Erlingsson, fréttamaður
12.30-12.40 Setning
Ágúst Hrafnkelsson, formaður stjórnar Sjónarhóls
12.40-12.50 Ávarp
Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra
12.50-13.20 Geta börn verið geðveik?
Iðunn Magnúsdóttir, sálfræðingur á BUGL
13.20-13.50 Sjónarhóll foreldris
Eva Dögg Long Bjarnadóttir, móðir
13.50-14.10 Hinar ýmsu birtingarmyndir samskipta- og hegðunarerfiðleika í skóla
Tómas Jónsson, sérfræðiþjónustufulltrúi í Kópavogi
14.10-14.30 Réttur "hinna barnanna"
Ingibjörg Kristinsdóttir, móðir
14.30-15.00 Kaffi og veitingar
15.00-15.20 Hvernig getur skólakerfið mætt þörfum barna með hegðunar- og/eða geðraskanir? Björk Jónsdóttir, skólastjóri Brúarskóla
15.20-15.40 "Unglingar á Stuðlum, staða þeirra og þjónusta við þau".
Sólveig Ásgrímsdóttir, forstöðumaður á Stuðlum
15.40-16.10 Reynsla fyrrum nemanda í Brúarskóla (myndband)
Gunnlaugur Egill Steindórsson
16.10-16.30 Geðraskanir barna í Íslendingasögunum
Óttar Guðmundsson, geðlæknir og rithöfundur
Veitingar í kaffihléi, á milli kl. 14.30 og 15.00
Skráning á heimasíðu Sjónarhóls www.sjonarholl.net
13.03.2012 21:11
Íslandsmót ÍF 30. mars - 1. apríl 2012
Hér að neðan fer tímaseðillinn fyrir Íslandsmót ÍF 30. mars - 1. apríl:
Mótssetning Íslandsmótanna fer fram í stóra sal Laugardalshallar kl. 10:00 laugardaginn 31. mars, öllum velkomið að taka þátt í innmarseringunni.
Föstudagur 30. mars
Frjálsíþróttahöllin: Keppni í frjálsíþróttum 17:00-20:00
Laugardagur 31. mars
Laugardalshöll: Keppni í boccia 9-18.
(9:30 fararstjórafundur, 10:00 mótssetning, 10:30 keppni í boccia hefst).
Frjálsíþróttahöll: Keppni í bogfimi 11:00-14:00.
Bíósalur í Laugardalshöll: Vigtun í lyftingum 11:00, keppni 14:00-16:00.
Laugardalslaug: Upphitun í sundi 14:00, keppni 15:00.
ÍFR-húsið: Borðtennis, keppni hefst 13:00.
Sunnudagur 1. apríl
Laugardalshöll: Keppni í boccia 09:00-14:00
Frjálsíþróttahöll: Keppni í bogfimi 10:00-14:00
Laugardalslaug: Upphitun í sundi 09:00, keppni í sundi 10:00.
09.03.2012 10:34
Ótitlað
Málefni fatlaðs fólks í alþjóðlegu ljósi
Málþing um skýrslu Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar og Alþjóðabankans um fötlun - (World Report on Disability)
Grand Hóteli Reykjavík
Fimmtudaginn 15. mars 2012 kl. 13:15 - 16:30
Velferðarráðuneytið býður til málþingsins í samsarfi við forsætisráðuneytið, innanríkisráðuneytið, Embætti landlæknis, Mannréttindaskrifstofu Íslands, Öryrkjabandalag Íslands, Landssamtökin Þroskahjálp og Rannsóknasetur í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands.
Á málþinginu kynnir Tom Shakespearesérfræðingur hjá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni, efni fyrstu alþjóðaskýrslunnarum fötlun og aðstæður fatlaðs fólks. Í skýrslunni er fjallað um helstu málefni sem snerta fatlað fólk svo sem heilbrigði, menntun, atvinnu, stuðning og þjónustu, aðgengi og hindranir í umhverfinu. Þar eru einnig tillögur um framþróun í málefnum fatlaðs fólks en megintilgangur skýrslunnar er að veita alþjóðlegar leiðbeiningar um innleiðingu Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Eftir kynningu Tom Shakespeare eru stutt innlegg frá fulltrúum forsætis-, velferðar-, og innanríkisráðuneyta, Embætti landlæknis, fulltrúum hagsmunasamtaka fatlaðs fólks og háskólasamfélagsins. Þessi innlegg fjalla um þýðingu skýrslunnar fyrir Ísland. Í lokin verða umræður. Málþingsstjóri er Lára Björnsdóttir sérfræðingur á skrifstofu velferðarþjónustu í velferðarráðuneytinu. Fyrri hluti málþingsins fer fram á ensku en seinni hlutinn verður á íslensku.
AðalfyrirlesarinnTom Shakespeare er heimsþekktur sem mikilvirkur fræðimaður á sviði fötlunarfræða og baráttumaður fyrir mannréttindum fatlaðs fólks. Tom Shakespeare hefur verið í samstarfi við íslenska fræðimenn á sviði fötlunarfræða um árabil og hefur komið til Íslands nokkrum sinnum og haldið fyrirlestra. Hann er hér á landi til að veita viðtöku heiðursdoktorsnafnbót við Háskóla Íslands. Tom er einn af höfundum og ritstjórum alþjóðaskýrslunnar um fötlun (World Report on Disability) sem kom út í júní 2011.
Dagskrá: | |
13:15 - 13:20 | Setning |
Málþingsstjóri Lára Björnsdóttir, sérfræðingur hjá Velferðarráðuneytinu | |
13:20 - 13:30 | Ávarp |
Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra | |
13:30 - 14:30 | Kynning á alþjóðaskýrslunni um fötlun (World Report on Disability) |
Tom Shakespeare, sérfræðingur hjá WHO | |
Fyrirspurnir og umræður | |
14:30 - 15:00 | Kaffihlé |
Seinni hlutinn verður á íslensku | |
15:00 - 16:30 | Hvaða þýðingu hefur alþjóðaskýrslan um fötlun fyrir Ísland? |
Stutt innlegg og umræður | |
1. | Héðinn Unnsteinsson, stefnumótunarsérfræðingur í forsætisráðuneytinu |
2. | María Rún Bjarnadóttir, lögfræðingur í innanríkisráðuneytinu |
3. | Sveinn Magnússon, skrifstofustjóri í velferðarráðuneytinu |
4. | Geir Gunnlaugsson, landlæknir |
5. | Gerður A. Árnadóttir, formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar |
6. | Guðmundur Magnússon, formaður Öryrkjabandalags Íslands |
7. | Rannveig Traustadóttir, prófessor í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands |
Málþingið verður rit- og táknmálstúlkað. Tónmöskvar verða á staðnum.
Allir velkomnir. Ekkert þátttökugjald.
07.03.2012 06:43
Æfingabúðir ÍF í sundi.
Helgina 10. til 11. mars næstkomandi fara fram opnar
Helgina 10. til 11. mars næstkomandi fara fram opnar æfingabúðir ÍF í sundi. Æfingabúðirnar munu fara fram í Ásvallalaug í Hafnarfirði.
Þeir sem hyggja á mætingu þessa helgina við opnu æfingabúðirnar þurfa að geta synt hjálpartækjalaust og getað klárað æfingu sem er 90-120 mín löng. Þjálfarar frá aðildarfélögum (fatlaðra/ófatlaðra) eru hvattir til að mæta með iðkendum sínum.
Opnu æfingabúðirnar fara fram á eftirfarandi tímum og eru allir velkomnir:
Ásvallalaug
Laugardagur 10. mars?
08.00-10.00
?Hlé
14.00-16.00
Sunnudagur 11. mars?
09.00-11.00
. Æfingabúðirnar munu fara fram í Ásvallalaug í Hafnarfirði.
Þeir sem hyggja á mætingu þessa helgina við opnu æfingabúðirnar þurfa að geta synt hjálpartækjalaust og getað klárað æfingu sem er 90-120 mín löng. Þjálfarar frá aðildarfélögum (fatlaðra/ófatlaðra) eru hvattir til að mæta með iðkendum sínum.
Opnu æfingabúðirnar fara fram á eftirfarandi tímum og eru allir velkomnir:
Ásvallalaug
Laugardagur 10. mars?
08.00-10.00
?Hlé
14.00-16.00
Sunnudagur 11. mars?
09.00-11.00
27.02.2012 19:08
Íþróttaskóli fyrir hressa krakka
Íþróttaskóli fyrir hressa krakka
Námskeiðið er í 5.vikur frá 3.mars til 31.mars. Íþróttaskólinn er í boði einu sinni í viku alla laugardaga kl:10:30-11:30. Skólinn er fyrir krakka á aldrinum 4-8 ára.
Íþróttaskólinn hefur aðsetur hjá íþróttafélgi fatlaða við Hátun 14. Best er að börnin séu berfætt/tátiljum og í þægilegum bol og buxum, ekki er þörf á sérstökum íþróttafatnaði.
Í íþróttaskólanum leysum við ýmsar þrautir þar sem börnin þurfa að reyna á jafnvægi, fín- og grófhreyfingar, samhæfingu og líkamlegan þroska sem félagslegan. Þau læra að bera virðingu fyrir öðrum og vinna saman skynfærin þarf einnig að örva og samhæfa
Skólastjórar eru Ása Guðbrandsdóttir og Kara Rut Hanssen .
Nánari upplýsingar veita skólastjórar í gegnum netfangið ifrskoli@gmail.com alla aðrar upplýsingar veitir Þórður í síma 561-8226 eða í netfangið ifr@ifr.is
27.02.2012 12:11
Reykjadalur
lýsa vel þeirri starfsemi sem fram fer í Reykjadal, en þar hefur Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra rekið frá árinu 1963 sumar- og helgardvalarstað fyrir fötluð börn og ungmenni.
Árlega dveljast í Reykjadal um 200 börn alls staðar að af landinu, flest þó af Reykjavíkur- og Reykjanessvæðinu.
Frá maílokum fram í miðjan ágúst er boðið upp á sumardvöl og yfir vetrarmánuðina er boðið upp á helgardvöl. Hvert barn getur dvalið í eina til tvær vikur yfir sumartímann og tvær helgar yfir vetrartímann.
Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt og vega þar íþróttir og leikir þungt. Sundlaug er á staðnum ásamt heitum potti og njóta krakkarnir þess mjög að svamla um í heitu vatninu.
Sækja þarf um sumardvöl fyrir 1. mars
08.02.2012 07:10
Frjálsíþróttaæfingar
Frjálsíþróttaæfingar ungmenna á fimmtudögum kl. 16
Ingólfur Guðjónsson verður áfram með frjálsíþróttaæfingar í vetur fyrir ungmenni með fötlun. Æfingarnar eru fyrir börn á aldrinum 6-13 ára og eru á fimmtudögum kl. 16:00 í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal.
Æfingar voru einnig fyrir áramót undir stjórn Ingólfs og gengu vel og eru allir hvattir til þess að mæta á æfingu og prófa.
Nánari upplýsingar um æfingarnar veitir Ingólfur á ingolfur@mr.is
Kveðja/regards,
Jón Björn Ólafsson
Forstöðumaður þjónustusviðs ÍF
11.01.2012 20:31
Þorrablót
Þorrablót
Nú nálgast Þorrinn og mál til
komið að fagna því!!!
Þorrablót CP
félagsins verður haldið að Háaleitisbraut 11-13, 4. hæð
laugardaginn 4. febrúar kl. 19.00. (staðsetning gæti breyst)
Verð kr. 3.000.- fyrir
manninn.
Ath. hver kemur með sín
drykkjarföng.
Sendið póst á cp@cp.is
,
eða hringið í síma 691-8010
í síðasta lagi miðvikudaginn 1.
febrúar
og tilkynnið þátttöku.
Sjáumst hress á þorrablóti.
